Hallóhalló... já, við erum a lífi !!
Jæja, það er nú orðið dálítið langt síðan við skrifuðum og settum inn myndir síðast ...settum inn margar myndir núna!! Við erum núna rétt hjá Abel Tasman National Park en þangað ætlum við í kayakferð á morgun ...það verður örugglega mjög spennandi. Annars erum við búin að sjá svo margt að ég veit nú varla hvar ég á að byrja...ég vona að þið séuð sleip í dönskunni, Lína er svo dugleg að skrifa!! Annars erum við búin að skoða Milford Sound og MtAspring NP, bæði alveg einstaklega fallegt. Síðan erum við búin að fikra okkur upp (norður) með vesturströndinni á Suðureynni og erum núna næstum komin nyrst þar sem við tökum ferju yfir á norðureynna. Annars hefðum við þurft að hafa miklu meiri tíma hérna, tíminn er ansi fljótur að líða ...bara 13 dagar þar til við komum heim!!! Ég verð nú að viðurkenna að það verður ansi gott að komast heim aftur :) Annars vonum við að þið hafið það öll sem allra best ...og endilega commentið!! við bíðum alltaf spennt eftir því!
Kærar kveðjur, Finnbogi og Line.
PS. Til hamingju með afmælið Dagný systir ...sem var reyndar á miðvikudaginn!!

8 Comments:
flottar myndir hjá ykkur. Ansi flott nátturan þarna hjá ykkur. Maður væri nú alveg til í að kíkja þanna til ykkar, er á kafi í prófum þessa stundina en allavegana....
kv. frá landinu lengst í noðri
Hæ hæ, rakst á síðuna ykkar á blogginu hjá Sirrý. Þvílík draumaferð sem þið eruð í, og greinilega mjög gaman hjá ykkur. Rosa flottar myndirnar líka. Hafið það gott það sem eftir er ferðarinnar.
Kveðja Solveig Björk
www.aronasgeir.barnaland.is
Hallo Finnbogi og Lina fengum sendingu fra ykkur i gaer flott myndin af Linu komin upp a sjonvarpsskap.Engin flaska i vinkassanum.Annars allt gott ad fretta af okkur timinn flygur afram nu er stutt eftir. mikid rosalega eru myndirnar flottar aldeilis aevintyri hja ykkur. Finnbogi Biggi spyr hvort thu getir sennt honum passvordid af tolvunni i sms. Her var brjalad vedur i gaerkvoldi og nott jolaundirbuningur a fullu. Vona ad allt gangi vel hja ykkur. Kvedja mamma Moso
Gangi ther vel i profinu vinur og hjartanlega til hamingju med frumburdinn Solveig :) Eg sendi SMS mamma min... kv, Finnbogi.
frábært síðu hjá ykkur! alveg gekkjaðir myndir! hlakkar til að sjá ykkur aftur og heyra margar góðar sögunnar ;)
líne komdu heim! ég er einmanna í sveitinni haha
kv Jelena
Heil og sæl. !
Gaman að fá svona fínar myndir frá ykkur. Þær segja meira en mörg orð.Landslagið mynnir nú maargt á Ísland. Allt gott að frétta. Við erum komin frá NY. Það var fín ferð, en ansi kalt. Nú fer að styttast í heimkomuna hjá ykkur, enda er hún alltaf best. Hlakka til að sjá ykkur
P.S Frá ARA : hæ finnbogi og lína eith spennó að gerast ?
ég er búinn að fá i pot . ég sakna ykkar. Kveðja Ari Snær.
Sæll
Ja hvur fjárinn bara kominn Down undir..
Ég er nú bara að fara í síðasta prófið hér við HA og svo að vinna á Bæjarskrifstofunum...
Bið að heilsa..
Bergur
Hallo nu er aldeilis farid ad styttast i heimferd hja ykkur.Buid ad vera mjog fallegt jolavedur hja okkur en kalt nu er ad byrja ad hlyna og rigna. Berglind komin i jolafri og Dagny a morgun bedid eftir ad koma hestum i hus. Verdum i sambandi thegar naer dregur upp a flugnumer og heyrum i Linu. Hnakkurinn hennar er komin til okkar. Vona ad allt gangi vel. Kvedja mamma moso.
Post a Comment
<< Home